Dagana 21. og 22.febrúar 2020 fengum við einn elsta veitingastað landsins í heimsókn á Nielsen. Leifur Kolbeinsson, yfirmatreiðslumaður og eigandi ítalska veitingastaðarins La Primavera (sem nú er til húsa í Marshall húsinu á Granda í Reykjavík) mætti með 6 rétta matarupplifun á Nielsen restaurant sem var brot af því besta sem er á boðstólum á veitingastaðnum sjálfum. Hann tók með sér vínþjóninn Axel Aage Schiöth sem sá um að para ítölsk gæðavín með matseðlinum og fræða matargestina um uppruna þeirra, frameiðsluferli og brögð. La Primavera sérhæfir sig í hágæða ítalskri matargerð þar sem áhersla er lögð á rétti frá svæðum norður Ítalíu í bland við íslenkt hráefni. Viðtökurnar fóru fram úr okkar björtustu vonum og munum við án efa endurtaka leikinn áður en langt um líður. Við þökkum þeim Leifi og Axel kærlega fyrir frábæra helgi!
ANTIPASTO
NAUTACARPACCIO MEÐ BALSMIK, RUKOLA OG PARMESAN
PARMASKINKA Á GLÓÐUÐU BRAUÐI MEÐ GEITAOSTASÓSU
PASTA
RAVIOLI FYLLT MEÐ RICOTTA OG EGGJARAUÐU, BORIÐ FRAM MEÐ VILLSVEPPASÓSU
CASARECCIO MEÐ STERKKRYDDAÐRI SKELFISKSÓSU
SECONDO
KÁLFA RIBEYE MILANESE MEÐ FETTUCINE Í STERKKRYDDAÐRI TÓMATSÓSU
DOLCI
LJÚFFENG TIRAMISU
VÍNPÖRUN MEÐ ÍTÖLSKUM VÍNUM
TORRE MORA ETNA ROSATO
NESPOLI PAGADEBIT
MASI CAMPOFIORIN
RICOSSA NIZZA
GIACONDI LAMBRUSCO
FORDRYKKIR
PICCINI PROSECCO
BASIL COLLINS
APERETIVO
LIMONCELLO
GRAPPA